Bólusetningar við inflúensu hefjast mánudaginn 19. október
Byrjað verður að bólusetja áhættuhópa fyrir inflúensu.Skjólstæðingar Heilsuvernd Heilsugæslu í Urðarhvarfi geta bókað sig í bólusetningu á mínum síðum á Heilsuveru eða í síma 510-6550.
Mánudaginn 19. október verður byrjað að bólusetja áhættuhópa fyrir inflúensu.
Skjólstæðingar Heilsuvernd Heilsugæslu í Urðarhvarfi geta bókað sig í bólusetningu á mínum síðum á Heilsuveru eða í síma 510-6550
Aðrir sem óska eftir bólusetningu en tilheyra ekki áhættuhópum geta fengið bólusetningu frá og með 2. nóvember.
Þeir áhættuhópar sem eru í forgangi samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis eru:
- Allir 60 ára og eldri
- Börn undir 5 ára aldri sem hafa náð 6 mánaða aldri við bólusetningu
- Börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, offitu, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum
- Barnshafandi einstaklingar
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum
- Fólk í starfstengdi áhættu vegna samsmits árlegrar inflúensu og fuglainflúensu
Bóluefni gegn inflúensu er forgangshópum að kostnaðarlausu.
Notast verður við tvær gerðir af bóluefni í ár:
- Influvac – Hefðbundið óvirkjað inflúensubólefni í sprautu
- Fluenz – Lifandi veiklað nefúðabóluefni ætlað börnum 2 til 4 ára og börnum 5-17 ára sem eru í áhættuhópum
Frekari upplýsingar um bólusetningar gegn árlegri inflúensu veturinn 2026-2027 má nálgast á vef Embætti landlæknis