OPNUNARTÍMAR
Heilsugæslan er opin alla virka daga milli kl. 8:00-17:00
Síðdegisvakt lækna er alla virka daga milli kl. 16:00 og 17:00*
Rannsóknarstofan Sameind er opin alla virka daga milli 8:00 og 15:30
*Aðeins fyrir skjólstæðinga heilsugæslunnar í Urðarhvarfi.
TÍMABÓKANIR
Tímabókanir einstaka lækna fara fram á Heilsuveru.
Aðrar tímabókanir fara fram í síma 510-6550.
Hjúkrunarfræðingar sjá um að bóka á síðdegisvakt í síma 510-6550 milli kl. 8:30 og 12:00
LYFJAENDURNÝJANIR
Lyfjaendurnýjanir fara fram á Heilsuveru eða í síma 510-6550 á milli kl. 10:00 og 11:30 alla virka daga.
Athugið að allar lyfjaendurnýjanir ávanabindandi lyfja fara fram í tímabókun hjá lækni.
NÁNAR UM OKKUR
Markmið heilsugæslustöðvarinnar eru að veita góða þjónustu og stuðla að snemmbæru inngripi sjúkdóma. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga á öllum aldursskeiðum.
STARFSFÓLK
Heilsugæslan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu.
JAFNLAUNAVOTTUN
Heilsuvernd og öll fyrirtæki í samstæðunni, Heilsuvernd Heilsugæslan Urðarhvarfi, Heilsuvernd Hjúkrunarheimili og Heilsuvernd á Vífilsstöðum hafa hlotið Jafnlaunavottun sem byggir á jafnlaunastaðli ÍST85-2012.
Staðallinn tryggir fagleg vinnubrögð sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun. Heilsuvernd hefur komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og felur ekki í sér kynbundna mismunun.
PERSÓNUVERNDARSTEFNA
Í persónuverndarstefnu heilsugæslunnar er upplýst hvaða persónuupplýsingum við söfnum, hver tilgangurinn með söfnun þeirra er og með hvaða hætti upplýsingarnar eru unnar.
HAFA SAMBAND
Þér er ávallt velkomið að senda okkur fyrirspurn eða ábendingu um hvernig við getum bætt þjónustuna eða það sem við gerum vel.