Fara á efnissvæði

Lyfjaendurnýjanir

Lyfjaendurnýjanir fara fram með rafrænum skilríkjum á Heilsuveru eða í símtali við hjúkrunarfræðing stöðvarinnar og er aðeins fyrir skjólstæðinga Heilsuverndar heilsugæslunnar í Urðarhvarfi.

  • Lyfjaendurnýjun í gegnum Heilsuveru
  • Hjúkrunarfræðingur tekur á móti símtölum vegna lyfjaendurnýjunar fyrir skjólstæðinga stöðvarinnar Heilsuvernd, heilsugæslunnar í Urðarhvarfi, milli kl. 10:30 og 11:30 alla virka daga.  

Mikilvægt er að fylgjast reglulega með heilsufari hjá þeim erum á lyfjum til lengri tíma, því er nauðsynlegt að bóka tíma hjá lækni til að fá fjölnota lyfseðla.  

Athugið

  • Athugið lyfjaendurnýjun í síma er einungis fyrir skjólstæðinga Heilsuverndar heilsugæslunnar í Urðarhvarfi.
  • Lyfjaendurnýjun hjá hjúkrunarfræðingi á aðeins við um lyf sem hafa verið skrifuð út áður af lækni fyrir skjólstæðing heilsugæslunnar í Urðarhvarfi.  
  • Bóka þarf tíma hjá lækni fyrir öll ný lyf eða lyf sem hafa aðeins verið skrifuð út af sérfræðingi á annarri stofnun. 
  • Allar lyfjaendurnýjanir ávanabindandi lyfja s.s. sterkra verkjalyfja og róandi- og svefnlyfja fara fram í tímabókun hjá lækni.