Stefna Heilsuverndar í öryggis-, heilsu- og umhverfismálum
Stefna Heilsuverndar í öryggis-, heilsu og umhverfismálum tryggir að öryggi er haft að leiðarljósi í allri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins með stöðugar umbætur í huga.
Stefna Heilsuverndar í öryggis-, heilsu og umhverfismálum
Heilsuvernd hefur sett sér ÖHU-stefnu sem viðmið í aðgerðum í öryggis- heilsu og umhverfismálum:
- Hafa öryggis-, heilsu- og umhverfissjónarmið að leiðarljósi í allri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins með stöðugar umbætur í huga.
- Sérhverjum starfsmanni líði vel í vinnunni og fari ávallt heill heim frá vinnu.
- Nýta og umgangast auðlindir okkar af virðingu og taka tillit til umhverfisáhrifa s.s. við innkaup á aðföngum og minnkun úrgangs með aukinni endurvinnslu.
- Stuðla að víðtækri og góðri þekkingu og þjálfun starfsmanna sinna um öryggis-, heilsu- og umhverfismál með reglubundinni fræðslu og þjálfun.
- Leggja áherslu á trúnað við starfsmenn og viðskiptavini.
- Fara eftir lagalegum kröfum og öðrum reglubundnum kröfum sem gilda varðandi öryggis-, heilsu- og umhverfismál þ.m.l. varðveislu og vinnslu persónuupplýsinga.
- Vera í farabroddi fyrirtækja í öryggis-, heilsu og umhverfismálum.
Útgáfa: 1.0
Dags.: 12.09.2023