Jafnlaunastefna Heilsuverndar
Heilsuvernd leggur metnað í að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Umfang jafnlaunastefnunnar tekur til allra starfsmanna Heilsuverndar samstæðu.
Heilsuvernd leggur metnað í að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Umfang jafnlaunastefnunnar tekur til allra starfsmanna Heilsuverndar samstæðu.
Markmið Heilsuverndar er að vera eftirsóttur vinnustaður í fremstu röð innan velferðargeirans þar sem konur og karlar hafa jöfn tækifæri í starfi.
Jafnlaunakerfi Heilsuverndar er hannað með lög um jafna stöðu kynjanna að leiðarljósi (þágildandi lög nr. 10/2008, nú nr. 150/2020).
Gert var samkomulag við vottunaraðila ICERT um að taka út jafnlaunakerfið, með það að markmiði að hljóta jafnlaunavottun sem og að framkvæma árlega úttekt á jafnlaunastefnu og kerfi Heilsuverndar. Geri vottunaraðili á einhverjum tímapunkti athugasemdir varðandi launasamsetningu einhverra starfa mun samsetning vera endurskoðuð í kjölfar ábendingar og lagfærð.
Heilsuvernd hefur nú innleitt og hlotið skjalfesta jafnlaunavottun og heitir því að viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfis í samræmi við kröfur ÍST85:2012 staðalsins. Jafnlaunakerfi Heilsuverndar byggir á greiningartæki starfsmatskerfis SÍS, en það er notað til að meta með kerfisbundnum hætti þær kröfur sem störf gera til starfmanna. Kerfið byggir á hlutlægum viðmiðum.
Heilsuvernd hefur í þessu samhengi innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum ástæðum. Heilsuvernd skuldbindur sig til að framfylgja jafnlaunastefnunni í hvívetna. Á grunni lagaramma nr. 150/2020 hefur Heilsuvernd að markmiði að:
- Innleiða vottað Jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85, það verði skjalfest og því viðhaldið.
- Framkvæma launagreiningu a.m.k. einu sinni á ári þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og athugað hvort mælist munur á launum eftir kyni og kynna helstu niðurstöður fyrir starfsfólki.
- Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
- Gera innri úttekt og halda rýni stjórnenda árlega.
- Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma, 150/2020, 86/2018 og 80/2019 sem og annarra laga sem við eiga.
- Kynna stefnuna árlega fyrir starfsmönnum Heilsuverndar. Stefnan skal einnig vera almenningi aðgengileg á heimasíðu Heilsuverndar samstæðunnar.
Útgefin 01.09.2023
Útgáfa: 1.0