Fara á efnissvæði

Um okkur

Heilsugæsla Reykjavíkur ehf gerði samning við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur heilsugæslustöðvar samkvæmt útboði Ríkiskaupa og hóf starfsemi þann 01.08.2017 í Urðarhvarfi 14. Ákveðið var að vinna undir sömu merkjum og Heilsuvernd og kalla stöðina Heilsuvernd heilsugæsla. 

Markmið

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður sjúklinga á öllum aldursskeiðum.

Markmið heilsugæslustöðvarinnar eru að veita góða þjónustu og stuðla að snemmbæru inngripi sjúkdóma. 

Sérstök  áhersla er lögð á forvarnir, lífsstíl, mataræði og hreyfingu og teymisvinnu fagaðila á stöðinni með þetta að leiðarljósi. Þá mun stöðin sérhæfa sig í umönnun aldraðra og heilsugæslu þeirra með það að markmiði að bæta lífsgæði þeirra. 

…því hver dagur er dýrmætur!