Ung- og smábarnavernd
Fylgst er reglubundið með heilbrigði og framförum á þroska barna, andlegum, félagslegum og líkamlegum, frá fæðingu til skólaaldurs.
Heilbrigði og þroski
Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna og þannig stuðlað að því að börnum séu búin bestu mögulegu uppvaxtarskilyrðum á hverjum tíma. Mikilvægt er að uppgötva sem fyrst frávik hvað heilsufar og þroska varðar og gera viðeigandi ráðstafanir.
Heimavitjanir
Ljósmóðir/hjúkrunarfræðingur vitjar nýfæddra barna og fjölskyldna þeirra fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Fjöldi vitjana er mismunandi og tekur mið af þörfum hverrar fjölskyldu.
- Fyrsta heimsókn frá heilsugæslunni er um 2 vikna aldur barns eða stuttu eftir að heimaþjónustu ljósmóður lýkur.
- Að jafnaði eru heimsóknirnar tvær til þrjár fram að 6 vikna aldri barns.
Að því loknu tekur við ungbarnavernd á heilsugæslunni samkvæmt tilmælum Embættis Landlæknis.
Fyrsta skoðun á heilsugæslustöð
- Fyrsta skoðun inn á heilsugæslustöðinni er við 6 vikna aldur barnsins.
Fyrsta bólusetningin
- Fyrsta bólusetning er þegar barnið er 3 mánaða.
Hægt er að fá símaviðtal við hjúkrunarfræðing í ungbarnavernd í gegnum móttöku í síma 510-6550. Reynt er að hafa samband samdægurs.