Meðgönguvernd
Helsta markmið meðgönguverndarinnar er að stuðla að eðlilegri meðgöngu, greina áhættuþætti eins fljótt og auðið er og bregðast við þeim.
Allar mæður/foreldrar sem skráð eru á stöðina eða búa í nágrenni hennar eiga kost á að fá þjónustu ljósmóður á meðgöngu. Meðgönguvernd er móður að kostnaðarlausu hafi hún átt lögheimili á Íslandi síðustu 6 mánuði
Leitast er við að efla vellíðan móður, stuðla að auknu öryggi foreldra með því að undirbúa þá fyrir nýtt hlutverk með ráðgjöf og fræðslu um meðgönguna, algenga fylgikvilla meðgöngunnar, fæðinguna og fyrstu dagana eftir fæðingu, eftir því sem við á.
Æskilegt er að koma í fyrsta viðtal til ljósmóður á 10.-11. viku meðgöngu.
Við tímabókun er gott að spjalla við ljósmóður til að skipuleggja framhaldið, fá fyrstu ráðgjöf og fræðslu og segja frá heilsufarsvanda ef einhver er.
Skoðanir í mæðravernd eru að meðaltali 7-10 talsins.
Ávallt er hægt að leita eftir ráðgjöf ljósmóður í síma, alla daga frá kl. 8:00-15:00. Einnig er hægt að bóka aukatíma í mæðravernd ef einhverjar áhyggjur vakna.
Nánari upplýsingar um meðgöngu, mæðravernd og fæðingu er að finna á Island.is meðganga og fæðing
Nálastungur
Ljósmæður heilsugæslunnar bjóða upp á nálastungumeðferðir við meðgöngukvillum.
Skoðun eftir fæðingu
6-10 vikum eftir fæðingu er boðið upp á viðtal/skoðun eftir fæðingu þar sem heilsa og líðan móður eru metin og veitt ráðgjöf eða þeim vísað áfram til annara fagaðila eftir þörfum.
Nánari upplýsingar um þessa þjónustu færðu hjá þinni ljósmóður.
Upplifun fæðingar – viðtal
Viðtal hjá ljósmóður fyrir mæður/foreldra sem vilja fara sérstaklega yfir erfiða fæðingarreynslu. (Áður ,,Ljáðu mér eyra“).
Getnaðarvarnarfræðsla
Ljósmæður heilsugæslunnar bjóða upp á fræðslu um getnaðarvarnir. Tekin er kynheilbrigðissaga og fundin getnaðarvörn sem hentar þörfum hvers og eins.
Ljósmæður heilsugæslunnar hafa leyfi til að skrifa út getnaðarvarnir og sinna eftirliti með þeim.