Líkamskerfi okkar er gert fyrir hreyfingu.

Marga lífsstílssjúkdóma má rekja í dag til hreyfingarleysis. Umfangsmikil vísindaleg þekking er fyrir jákvæðum áhrifum hreyfingar á hina ýmsu sjúkdóma.

Hreyfiseðill byggir á því að læknir metur einkenni og ástand skjólstæðings og ávísar síðan hreyfingu sem meðferð, eða hluta af meðferð við þeim sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum sem verið er að fást við.

Læknir vísar skjólstæðingi áfram til sjúkraþjálfara sem sinnir starfi hreyfistjóra á heilsugæslunni. Í komunni til hans eru möguleikar og geta til hreyfingar ræddir og metnir í sameiningu. Sett eru fram markmið og útbúin hreyfiáætlun sem byggir á fagþekkingu. Auk þess er 6 mínútna göngupróf framkvæmt og kennt hvernig skráning á hreyfingu er háttað.

Skráning er þá í höndum skjólstæðings og eftirfylgnin í höndum hreyfistjóra og læknis.

Hreyfistjórinn fylgist reglulega með framvindu og gangi mála og læknirinn ákveður endurkomu til sín við útgáfu hreyfiseðilsins.