Sjúkratryggðir
Gjaldskrá þjónustu
Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu", sem gengur í gildi 1. janúar 2026, ákveðið eftirfarandi greiðslur sjúkratryggðra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.
Sjúkratryggðir kunna að þurfa að greiða önnur gjöld fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. þegar heilsugæslulæknar vísa þeim til sérfræðinga eða í sérstakar læknisfræðilegar rannsóknir. Þau gjöld koma fram í reglugerðinni
Komur og vitjanir
Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga og næringarfræðings á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,
- almennt gjald 500 kr.
Koma á heilsugæslustöð til lækna, hjúkrunarfræðinga og næringarfræðings utan dagvinnutíma,
- almennt gjald 3.100 kr.
Vitjun læknis á dagvinnutíma, kl. 8:00 - 16:00,
- almennt gjald 3.400 kr.
Vitjun læknis utan dagvinnutíma,
- almennt gjald 4.500 kr.
Börn undir 18 ára aldri, börn með umönnunarkort, aldraðir og öryrkjar og þeir sem koma vegna mæðraverndar greiða ekki.
Rannsóknir og greiningar
Rannsókn með beiðni til rannsóknarstofu,
- almennt gjald 3.716 kr.
- aldraðir og öryrkjar 0 kr.
Krabbameinsleit,
- almennt gjald 500 kr.
- aldraðir og öryrkjar 0 kr.
Önnur þjónusta
Auk komugjalda skulu sjúkratryggðir 18 ára og eldri, aldraðir og öryrkjar greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:
- Þungunarpróf, 936 kr.
- Þvagprufuglas, Komugjald/500 kr.
- Streptókokkapróf, 673 kr.
- Lyfjaleit í þvagi: 936 kr + komugjald
- CRP próf, 1,227 kr.
- Berklapróf (Tuberkulin), kostnaðarverð/innkaupsverð. Gjaldskrá er uppfærð mánaðarlega.
- Blóðaftöppunarpoki, 1.519 kr.
Greiðslur sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu og afsláttarstofn
Ef heildarkostnaður vegna heilbrigðisþjónustu í almanaksmánuði fer yfir ákveðna fjárhæð greiða Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eða viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er.
- Hámarksgreiðsla sjúkratryggðs almennt er 37.794 kr.
- Hámarksgreiðsla aldraðra, öryrkja, barna og barna með umönnunarmat er 25.198 kr.
Greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en hámarksgreiðsla í almanaksmánuði. Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af hámarksgreiðslu um hver mánaðamót, óháð greiðslum sjúkratryggðs. Við ákvörðun greiðsluþátttöku skal leggja saman afsláttarstofn og greiðslur. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu.
Veitendur heilbrigðisþjónustu skila upplýsingum um þjónustugjöld til SÍ jafnóðum.
Nánari upplýsingar um greiðsluþátttökukerfið eru á vef Sjúkratrygginga Íslands
Orðskýringar
- Aldraður: Sjúkratryggður einstaklingur 67 ára og eldri og sjómaður 60 ára og eldri sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða lengur
- Börn: Sjúkratryggðir einstaklingar yngri en 18 ára.
- Börn með umönnunarmat: Sjúkratryggð börn og ungmenni á aldrinum 18 og 19 ára sem eru með umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins
- Sjúkratryggðir almennt: Sjúkratryggðir einstaklingar aðrir en aldraðir, öryrkjar, börn og börn með umönnunarmat.
- Öryrki: Sjúkratryggður einstaklingur sem hefur verið metinn til a.m.k. 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins.