Fara á efnissvæði

Ósjúkratryggðir

Gjaldskrá þjónustu

Greiðslur einstaklinga þegar milliríkjasamningar um almannatryggingar gilda ekki. Heilbrigðisráðuneytið hefur með "Reglugerð um heilbrigðisþjónustu við þá sem ekki eru sjúkratryggðir á Íslandi og greiðslur fyrir þjónustuna." sem gengur í gildi 1. janúar 2026, ákveðið eftirfarandi greiðslur þeirra fyrir þjónustu heilsugæslunnar.

Einstaklingur tryggður í EES-landi (þetta á einnig við um íslenska ríkisborgara með lögheimili í öðru EES-landi) sem þarf á skyndilegri og nauðsynlegri læknishjálp að halda þegar hann dvelst hér á landi á að greiða eins og þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi. Forsenda þess er þó að hlutaðeigandi leggi fram:

  • Evrópska sjúkratryggingakortið 
  • Gilt bráðabirgðavottorð E-111 
  • Gilt vottorð frá tryggingarstofnun í öðru EES landi E-104 
  • Gilt vottorð E-106 útsendir starfsmenn 
  • Ljósrit af vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang (mynd)
  • Athugið vel gildistíma allra gagna. Geti hlutaðeigandi ekki framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) og vegabréfi skal heilsugæslustöð krefja hann um fulla greiðslu samkvæmt reglugerð.

Ferðamenn frá Norðurlöndum: Hægt er að staðfesta búsetu t.d. með gildu ES-korti (ekki íslensku ES-korti), bráðabirgðaskírteini eða sjúkratryggingakorti frá viðkomandi landi (sbr. gul sjúkratryggingakort frá Danmörku). Einnig þurfa ferðamenn frá Norðurlöndunum að framvísa persónuskilríkjum með mynd, t.d. vegabréfi. 

Heilsugæslustöðin skal taka ljósrit af evrópska sjúkratryggingakortinu (vottorði) sjúklings, vegabréfi og greinargerð læknis. Gögnin eru send með reikningi til Sjúkratrygginga Íslands. 

 

Komur

  • Koma á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 8:00-16:00, 13.951 kr.
  • Koma á heilsugæslustöð vegna mæðra- og ungbarnaverndar, 13.951 kr.
  • Koma á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma og á laugardögum og helgidögum, 20.648 kr.

Vitjanir

  • Vitjun læknis á heilsugæslustöð á dagvinnutíma, 29.576 kr.
  • Vitjun læknis á heilsugæslustöð utan dagvinnutíma, 36.690 kr.
  • Vitjun annarra en lækna á heilsugæslustöð, 15.066 kr.

Bólusetningar

Auk komugjalda greiða ósjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. Ósjúkratryggðir greiða auk þess 1.000 kr. umsýslugjald fyrir hvern skammt.

Sjá gjaldskrá bólusetninga hér

Bóluefni vegna barnabólusetninga
Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir barnabólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega.

Önnur þjónusta

Auk komugjalda skulu ósjúkratryggðir greiða fyrir aðra þjónustu sem hér segir:

  • Þungunarpróf 935 kr. 
  • Streptókokkarannsóknir 673 kr. 
  • Lyfjaleit í þvagi 935 kr.
  • CRP (C-reaktíft prótein) 1.227 kr.
  • HbA 1c (glýkósýlerað hemóglóbín) 1.753 kr.
  • Berklapróf - Mantoux (Tuberkulin) sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Lykkja (t) 4.944 kr. 
  • Hormónalykkja sjá gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega
  • Pokar vegna blóðaftöppunar, 1.520 kr.
  • Afnot af rannsóknatæki fyrir kæfisvefn, 7.290 kr.
  • Leigugjald fyrir afnot af blóðþrýstingsmæli í 24 stundir, 7.290 kr.
  • Legstrok vegna krabbameinsleitar, 13.951 kr.
  • ADHD greining fullorðinna, 29.223 kr.
  • Gjöld fyrir læknisvottorð skulu miðast við hversu langan tíma það tekur lækni að gera vottorðið og skal greiða 9.209 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur.

Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu skal greiða 6.558 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir hverja komu til geisla- og myndgreiningar skal greiða 6.558 kr. og til viðbótar 100% af umsömdu eða ákveðnu heildarverði við komuna.

Fyrir nauðsynlega túlkaþjónustu skal sjúklingur greiða fullt gjald samkvæmt samningi Ríkiskaupa þjónustuaðila um túlkaþjónustu.

Tryggingastaða einstaklinga

Komin er á tenging á milli heilsugæslunnar og Sjúkratrygginga Íslands sem uppfærir tryggingastöðu sjúklinga einu sinni á sólarhring. 

Sögukerfið sýnir rétta tryggingastöðu einstaklinga hvort sem viðkomandi er sjúkratryggður eða ekki. Ef það koma fyrirspurnir frá sjúklingi, er hægt að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands í síma: 515-0003.