Gjaldskrá vegna bólusetninga
Auk komugjalda greiða sjúkratryggðir fyrir bólusetningar á heilsugæslustöð (hvern skammt) samkvæmt gjaldskrá sem er uppfærð mánaðarlega. Greiðslur fyrir bóluefni fara ekki inn í afsláttarstofn.
Bóluefni við árstíðabundinni inflúensu er að kostnaðarlausu þeim sem eru í tilgreindum áhættuhópum. Skjólstæðingar heimahjúkrunar greiða fyrir inflúensubóluefni.
Ekki er greitt fyrir reglubundnar bólusetningar í ungbarnavernd.
- Hlaupabóla (Varilrix): 6.500 kr (Endurgjaldslaust fyrir sjúkratryggð börn fædd 1. Janúar 2019 eða síðar)
- Inflúensa (Vaxigrip Tetra): 1.600 kr
- Kíghósta-, barnaveiki- og stífkrampabóluefni (Boostrix): 2.800 kr
- Kíghósta-, barnaveiki-, stífkrampa- og mænuveikibóluefni (Boostrix-Polio): 3.500 kr
- Lifrarbólga A (Havrix): Fullorðnir (16 ára +) 4.600 kr, börn (1 árs – 15 ára) 4.200 kr
- Lifrarbólga B (Engerix-B): Fullorðnir (16 ára +) 3.400 kr, börn (0 ára – 15 ára) 2.700 kr
- Lifrarbólga A og B (Twinrix): Fullorðnir (16 ára +) 5.800 kr, börn (1 árs – 15 ára) 5.400 kr
- Lungnabólga fjölsykrubóluefni (Pneumovax): 4.700 kr
- Meningokokkar C (NeisVac-C): 5.100 kr
- Mislingar, hettustótt og rauðir hundar (M-M-RVAXPRO): 2.600 kr
- Mýgulusótt (Stamaril): 4.800 kr
- Taugaveiki (Typhim-Vi): 3.400 kr